Velkomin á heimasíðu Bahá’í samfélagsins í Reykjanesbæ!
Eining mannkyns og trúarbragða þess eru grundvallarkenningar bahá'í trúarinnar. Allt mannkynið er ein þjóð og öll trúarbrögð koma frá einum Guði. Bahá’u’lláh, höfundur trúarinnar, setti fram þessar kenningar og margar aðrar fyrir 180 árum og þær miða allar að einingu og friði á jörð. Bahá’í trúin er yngst heimstrúarbragðanna í heiminum og þótt fylgjendur hennar séu aðeins 5–6 milljónir talsins er hún landfræðilega útbreiddasta trúarbrögð heims næst á eftir kristinni trú.